Fotbolti.net
07.02.15 - 10:30
Magnús Már Einarsson

Leik frestað í Fótbolta.net mótinu þar sem tjald hrundi

Svona var staðan í Reykjaneshöllinni í gær.

Svona var staðan í Reykjaneshöllinni í gær.

Canon

Mynd: Víðir Garði

Víðir og Álftanes áttu að mætast í C-deild Fótbolta.net mótsins í Reykajaneshöllinni í gærkvöldi.

Þegar liðin voru við það að fara að heilsast fyrir leik hrundi tjaldið niður sem skilur vallarhelmingana að.

Ekki var hægt að laga tjaldið í gær og því varð að fresta leiknum.
Leikmenn gerðu þó það besta úr stöðunni en Víðir og Álftanes spiluðu æfingaleik á hálfan völl, sjö á móti sjö.

Ekki er búið að ákveða nýjan leiktíma fyrir leikinn en einnig varð að fresta leik hjá Víði gegn Augnabliki í Fótbolta.netmótinu í síðustu viku vegna vallaraðstæðna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.