sun 07. febrúar 2016 21:25
Alexander Freyr Tamimi
Belgía: Svekkjandi tap Sverris Inga og félaga
Sverrir og félagar töpuðu naumlega.
Sverrir og félagar töpuðu naumlega.
Mynd: Kristján Bernburg
Lokeren 0 - 1 Oostende
0-1 Andile Jali ('83)

Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn fyrir Lokeren þegar liðið þurfti að sætta sig við svekkjandi 1-0 tap gegn Oostende á heimavelli í belgísku úrvalsdeildinni í kvöld.

Lokeren er einungis fimm stigum frá neðsta sæti deildarinnar með 28 stig en hefur þó rifið sig upp töfluna eftir afleita byrjun á tímabilinu. Oostende er eftir sigurinn með 43 stig í 4. sæti deildarinnar.

Það var Andile Jali sem skoraði eina mark leiksins á 83. mínútu og dugði það til að leikmenn Lokeren færu tómhentir af velli.
Athugasemdir
banner
banner
banner