Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. febrúar 2016 17:54
Alexander Freyr Tamimi
England: Costa eyðilagði fyrir United í uppbótartíma
Costa var pirraður í leiknum en gat brosað við lokaflautið.
Costa var pirraður í leiknum en gat brosað við lokaflautið.
Mynd: Getty Images
Chelsea 1 - 1 Manchester Utd
0-1 Jesse Lingard ('61 )
1-1 Diego Costa ('90 )

Manchester United þurfti að sætta sig við afar grátlegt 1-1 jafntefli gegn Chelsea þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Diego Costa jafnaði metin fyrir Lundúnaliðið í uppbótartíma.

Fyrri hálfleikur var markalaus þó ekki hafi vantað fjörið. Thibaut Courtois varði meistaralega frá Anthony Martial og Chelsea átti einnig fín færi. Undir lok fyrri hálfleiks vildi Chelsea fá víti þegar Daley Blind virtist verja boltann með höndum. Ekkert var dæmt.

Hinn ungi Jesse Lingard kom United svo yfir á 61. mínútu. Hann gerði þá virkilega vel eftir að hafa fengið boltann frá Wayne Rooney í teignum þar sem hann sneri í átt frá marki. Með frábærri móttöku náði Lingard að snúa sér við og koma knettinum í netið.

Skömmu síðar átti Lingard þrumuskot yfir en Chelsea hefði síðan getað jafnað þegar David de Gea varði meistaralega frá Branislav Ivanovic. Spánverjinn varði svo aftur vel frá samlanda sínum Cesc Fabregas skömmu síðar. Diego Costa var einnig hársbreidd frá því að jafna á lokamínútunum en tókst það ekki.

Costa gafst hins vegar ekki upp og skömmu síðar skoraði hann jöfnunarmarkið eftir skelfileg varnarmistök sem hófust með klaufagangi hjá Daley Blind. Fór hann framhjá David de Gea og skoraði í autt markið.

Heilum ósköpum var bætt við leikinn en ekki urðu mörkin fleiri þrátt fyrir ágæta tilraun frá Wayne Rooney. Lokatölur 1-1.

Lærisveinar Louis van Gaal eru í 5. sæti deildarinnar með 41 stig, sex stigum frá nágrönnum sínum í Manchester City. Ljóst er að liðið tapaði þarna gríðarlega dýrmætum stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti.

Chelsea er í 13. sæti deildarinnar með 30 stig og hefur enn ekki tapað leik undir stjórn Guus Hiddink.


Athugasemdir
banner
banner