Ezequiel Lavezzi, leikmaður Paris Saint-Germain, er á leið til Shanghai Shenhua í Kína.
Lavezzi mun því fylgja í fótspor leikmanna eins og Jackson Martinez, Ramires og Gervinho, en þeir hafa allir farið til Kína í þessum glugga fyrir stórar upphæðir.
Lavezzi mun því fylgja í fótspor leikmanna eins og Jackson Martinez, Ramires og Gervinho, en þeir hafa allir farið til Kína í þessum glugga fyrir stórar upphæðir.
Lavezzi mun kosta Shenhua 3,8 milljónir punda og mun hann gera tveggja ára samning við kínverska félagið.
Samningur Lavezzi við PSG rennur út í lok leiktíðar, en hann hefur leikið 16 leiki í frönsku deildinni á þessu tímabili og skorað tvö mörk.
Hann var orðaður við Chelsea og Inter í janúar, en mun nú fara í peninganna í Kína.
Athugasemdir