Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 07. febrúar 2016 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Gylfi sendi stuðningsmanni kveðju á brúðkaupsdaginn
Gylfi gladdi stuðningsmanninn mikið
Gylfi gladdi stuðningsmanninn mikið
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Swansea, gladdi einn stuðningsmann liðsins afar mikið með því að senda henni kveðju á brúðkaupsdaginn.

Angela Govier er mikill stuðningsmaður Swansea, en hún missti af leik liðsins gegn Crystal Palace í gær, þar sem hún var að fara að gifta sig.

Landsliðsmaðurinn, Gylfi Þór Sigurðsson er í uppáhaldi hjá henni, en hann skoraði einmitt mark Swansea í leiknum í gær.

Gylfi ákvað að senda henni kveðju í tilefni dagsins og kom það henni mjög á óvart, en þess má til gamans geta að maður Govier heldur með erkifjendunum í Cardiff.

Hér fyrir neðan má sjá myndband af kveðju Gylfa og viðbrögð Govier við henni.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner