mán 07. mars 2016 16:15
Magnús Már Einarsson
Maciej Majewski ekki með Grindavík í sumar
Maciej Majewski.
Maciej Majewski.
Mynd: Fótbolti.net: Eyjólfur Garðarsson
Pólski markvörðurinn Maciej Majewski sleit hásin á æfingu með Grindavík í gær.

Þetta staðfesti Óli Stefán Flóventsson, þjálfari liðsins, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Majewski verður frá keppni í að minnsta kosti hálft ár og því liggur fyrir að hann verður lítið sem ekkert með Grindvíkingum í fyrstu deildinni í sumar.

Majewski varði einnig mark Grindavíkur síðastliðið sumar en hann kom til félagsins frá Sindra í fyrravetur.

Mikil meiðsli hafa verið hjá Grindvíkingum í vetur en vinstri bakvörðurinn Jósef Kristinn Jósefsson verður frá keppni næstu vikurnar eftir að hafa meiðst gegn Víkingi R. í Lengjubikarnum í síðustu viku.

Hákon Ívar Ólafsson og Matthías Örn Friðriksson eru að jafna sig eftir fóbrot auk þess sem hinn ungi Marinó Axel Helgason hefur veri að glíma við nárameiðsli í allan vetur.
Athugasemdir
banner
banner
banner