Í maí næstkomandi verður haldin stór ráðstefna í Hörpu þar sem margir þekktir aðilar úr fótboltaheiminum munu mæta á svæðið.
David Moyes, Kevin Keegan, Ruud Gullit, Martin O'Neill og Chris Coleman eru á meðal þeirra sem mæta á ráðstefnuna en þetta var tilkynnt í dag.
Lars Lagerback og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfarar Íslands, verða líklega einnig á ráðstefnunni.
David Moyes, Kevin Keegan, Ruud Gullit, Martin O'Neill og Chris Coleman eru á meðal þeirra sem mæta á ráðstefnuna en þetta var tilkynnt í dag.
Lars Lagerback og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfarar Íslands, verða líklega einnig á ráðstefnunni.
Ramon Calderon, fyrrum forseti Real Madrid, er staddur á Íslandi til að kynna ráðstefnuna og hann tók til máls á fréttamannafundi í Íslandsbanka í dag en bankinn er samstarfsaðili ráðstefnunnar.
„Ég hef kallað þetta íslenska kraftaverkið," sagði Calderon um uppganginn í íslenska fótboltanum í dag.
Ráðstefnan heitir „Hvernig fór Ísland að þessu?“ Markmiðið ráðstefnunnar er að velta því upp hvaða lærdóma megi draga, m.a. fyrir viðskiptalífið og aðrar þjóðir, af því hvernig Íslandi hefur tekist að snúa vörn í sókn í bæði íþróttum og efnahagsmálum.
Ráðstefnan fer fram aðra vikuna í maí en ekki er búið að negla nákvæma dagsetningu. Hægt verður að kaupa miða á ráðstefnuna þegar nær dregur.
„Það er með ólíkindum að hafa fylgst með Íslendingum frá því að bankarnir hrundu árið 2008 og hvernig þjóðin hefur náð að standa saman í því að snúa við að því er virðist vonlausri stöðu yfir í að vera aftur komin í fremstu röð í lífsgæðum þjóða,“ segir Calderón.
Það er fyrirtækið Business and Football sem stofnað er af Ramón Calderón og Arnari F. Reynissyni sem mun halda ráðstefnunna.

