David Luiz varnarmaður Chelsea hefur tvisvar sinnum farið til Barcelona til hné sérfræðings á tímabilinu. Brasilíumaðurinn hefur ekki gengið undir hnífinn að svo stöddu.
Luiz hefur aðeins spilað tíu leiki í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Ástæðan fyrir því eru þrálát meiðsli og einnig það að ungi danski varnarmaðurinn Andreas Christensen hefur tekið yfir stöðu hans í hjarta varnarinnar.
Luiz var einn besti varnarmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fyrra þegar Chelsea varð Englandsmeistari.
Hann spilaði síðast 5. febrúar þegar liðið mætti Watford og tapaði sannfærandi 4-1. Chelsea situr nú í fimmta sæti ensku úrvalsdeildinnar, fimm stigum á eftir Tottenham í fjórða sæti.
Athugasemdir