Juventus tryggði sér áframhaldandi þáttöku í Meistaradeild Evrópu þetta árið með 2-1 sigri á Tottenham í seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld.
Tottenham komst yfir og leiddi 1-0 í hálfleik en mörk frá Gonzalo Higuain og Paulo Dybala með stuttu millibili í seinni hálfleiknum sneru taflinu við fyrir gestina frá Ítalíu.
Tottenham komst yfir og leiddi 1-0 í hálfleik en mörk frá Gonzalo Higuain og Paulo Dybala með stuttu millibili í seinni hálfleiknum sneru taflinu við fyrir gestina frá Ítalíu.
Juventus fór alla leið í úrslit í fyrra og nú er stefnan væntanlega sett á að fara skrefinu lengra en þá.
Leikmenn Juventus voru mjög glaðir eftir sigurinn í kvöld og birtu sigurmynd úr klefanum fljótlega eftir leik.
Hér að neðan má sjá myndina. Allir í stuði!
Wembley winners! 🏟#TOGETHER pic.twitter.com/6U3dUhSr5a
— JuventusFC (@juventusfcen) March 7, 2018
Wojciech Szczesny, varamarkvörður Juventus, og fyrrum markvörður Arsenal, notaði tækifærið og skaut á Tottenham.
Athugasemdir