Ætla í jarðarför Astori
Giorgio Chiellini fór fyrir sínum mönnum í Juventus er liðið lagði Tottenham að velli í Meistaradeildinni í kvöld, 2-1.
Chiellini skaut á Tottenham eftir leikinn en hann talaði einnig um vin sinn, Davide Astori.
Astori, sem var fyrirliði Fiorentina, lést í svefni aðfaranótt sunnudags, en hann fékk hjartaáfall.
Hann var aðeins 31 árs.

Chiellini tileinkaði Astori sigurinn í kvöld en hann og liðsfélagar hans munu fara í jarðarför hans í Flórens á morgun.
„Hann var frábær leikmaður. Hann verður alltaf í hjörtum okkar," sagði Chiellini er hann barðist við tárin.
Viðtalið má sjá hér að neðan.
I’m sure someone already posted by now. But here’s Chiellini on Astori.. “Our last ciao” 💔💜 pic.twitter.com/B6CpLmK36q
— michael (@m1897) March 7, 2018
Athugasemdir