Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. mars 2018 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Fór grátandi af velli er hann fékk fréttir af Astori
Marko Bakic
Marko Bakic
Mynd: Getty Images
Marko Bakic, fyrrum liðsfélagi Davide Astori, réð ekki við tilfinningar sínar er hann frétti af andláti félaga síns.

Bakic var að spila fyrir portúgalska liðið Belenenses er hann fékk fréttirnar sorglegu af Astori.

Astori fór í hjartastopp í svefni aðfaranótt sunnudags. Öllum sunnudagsleikjum ítalska boltans var frestað vegna andlátsins sem gerðist nóttina fyrir leikdag. Fiorentina átti að mæta Emil Hallfreðssyni og félögum í Udinese.

Liðsfélagar Astori brutu upp hurðina að hótelherbergi hans þegar hann mætti ekki í morgunmat á leikdegi.

Hér að neðan má sjá þegar Bakic var tekinn af velli eftir að hafa fengið fréttirnar. Hann og Astori voru miklir vinir.

Sjá einnig:
Fiorentina og Cagliari leggja treyjunúmer Astori niður


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner