Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 07. mars 2018 22:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Næstum því 1000 sendingar - Guardiola ósáttur
Mynd: Getty Images
„Þegar það gerist er það ekki fótbolti," sagði Pep Guardiola eftir 2-1 tap gegn Basel í Meistaradeildinni í kvöld. Man City tapaði leiknum þrátt fyrir að hafa átt næstum því 1000 sendingar sem rötuðu á samherja í kvöld. Guardiola segir að leikmenn sínir hafi gerst sekir um að senda boltann bara til að senda boltann, það er ekki boðlegt.

Guardiola er ánægður með að vera kominn í 8-liða úrslitin þó frammistaðan í kvöd hafi ekki verið góð.

„Ég er svo ánægður að vera komin í 8-liða úrslit vegna þess að þetta er nýtt fyrir okkur," sagði Guardiola.

„Við gleymdum að sækja í seinni hálfleiknum. Við verðum að senda til að sækja, ekki senda til að senda."



Athugasemdir
banner
banner
banner