Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 07. mars 2018 23:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sagði Alli að „sjúga á sér tittlinginn" - Var hakkaður
Reiss Nelson
Reiss Nelson
Mynd: Getty Images
Reiss Nelson, einn efnilegasti leikmaðurinn í herbúðum Arsenal, segir að tölvuhakkarar hafi komist inn á Twitter-reikning sinn í kvöld.

Þessir tölvuhakkarar ákváðu að móðga Dele Alli, leikmann Tottenham, í gegnum reikning Nelson.

Twitter reikningurinn "Football Battles" birti GIF-myndband af Alli, sem var í eldlínunni með Tottenham gegn Juventus í Meistaradeildinni á þessu þriðjudagskvöldi, og bað notendur að lýsa honum í þremur orðum. Svarið frá reikningi Nelson var einfaldlega „suck my dick" eða „sjúgðu á mér tittlinginn".

Margir höfðu gaman af þessu og þar með talinn Nelson sem eyddi þó tístinu og baðst afsökunar.

Fótboltamenn eru í veseni með tölvuhakkara þessa daganna. Fyrr í dag sögðum við frá því að Riyad Mahrez, leikmaður Leicester, hefði lent í veseni með síðu sína á Facebook.





Athugasemdir
banner
banner
banner