Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 07. mars 2018 19:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger: Mér gengur ekki vel svo Gattuso getur gefið mér ráð
Mynd: Getty Images
Það var stutt í grínið hjá Arsene Wenger, stjóra Arsenal, á blaðamannafundi í dag.

Arsenal er að fara að spila við AC Milan í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar annað kvöld.

Ljóst er að verkefnið verður erfitt fyrir Arsenal, sérstaklega í ljósi þess að Gennaro Gattuso er að gera frábæra hluti með Milan. Undir hans stjórn hefur Milan ekki tapað í 13 leikjum í röð.

Á meðan hefur Arsenal tapað fjórum í röð.

Wenger er mikið reynslumeiri stjóri en hann grínaðist með það við blaðamenn að hann ætti kannski að þiggja ráð frá Gattuso.

„Ég þarf ekki að gefa honum ráð. Hann hefur mikla reynslu. Það gengur ekki svo vel hjá mér svo kannski get ég fengið ráð hjá honum," sagði Wenger léttur.

Gattuso hefur talað um það fyrir leikinn að hann beri mikla virðingu fyrir Arsenal og Wenger.
Athugasemdir
banner
banner
banner