Tvíburarnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir fá lítið að að spila þessa dagana. Nökkvi hefur þó eitthvað fengið að spila á meðan Þorri er úti í kuldanum hjá félagsliði sínu. Nökkvi er sóknarmaður og Þorri er bakvörður.
Nökkvi er leikmaður St. Louis City í Bandaríkjunum. Hann kom ekki við sögu með liði sínu í nótt í markalausu jafntefli gegn FC Dallas. Í síðustu sjö leikjum hefur hann spilað samanlagt um 40 mínútur (plús uppbótartíma) og tvisvar verið ónotaður varamaður. Liðið hefur einungis unnið einn af leikjunum og er í 10. sæti Vesturdeildarinnar eftir sjö umferðir.
Þorri er leikmaður Öster í Svíþjóð og hefur hann verið utan hóps í fyrstu tveimur leikjum sænsku B-deildarinanr.
Þorri kom einungis við sögu í einum leik í bikarnum í aðdraganda deildarkeppninnar og var svo settur út úr hóp. Öster gerði jafntefli í fyrstu umferð og vann svo Varberg í gær.
Dalvíkingarnir. sem eru 24 ára gamlir, léku báðir með með KA áður en þeir héldu út í atvinnumennsku. Nökkvi fór erlendis haustið 2022 sem markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar og samdi þá við Beerschot í Belgíu og var svo síðasta sumar keyptur til St. Louis. Þorri var keyptur til Öster í sumarglugganum í fyrra.
Athugasemdir