Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 07. júní 2018 15:48
Magnús Már Einarsson
Hlustaðu á nýtt stuðningslag íslenska landsliðsins
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gefið hefur verið út stuðningslagið „Syngjum áfram Ísland“, eftir Þóri Úlfarsson, í tilefni af þátttöku Íslands á HM í Rússlandi.

Meðal þeirra sem koma að laginu eru Björgvin Halldórsson, Stebbi Hilmars, Eyþór Ingi, Selma Björnsdóttir, Jóhanna Guðrún, Pálmi Gunnarsson, Páll Rósinkrans, Sigga Beinteins, Grétar Örvarsson, Stefanía Svavarsdóttir, Eyjólfur Kristjánsson og Dagur Sigurðsson.

Hljóðfæraleikarar eru auk Þóris þeir Kristján Grétarsson, Eiður Arnarsson, Pétur Valgarð og Máni Svavarsson. Kristján Hreinsson samdi textann við lagið.

Hér að neðan má hlusta á lagið og sjá myndband sem fylgir með því.

Ísland mætir Gana klukkan 20:00 í kvöld áður en liðið fer til Rússlands á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner