Spænska félagið Sevilla hefur keypt varnarmanninn Adil Rami frá AC Milan.
Hinn 29 ára gamli Rami kom til AC Milan frá Valencia í janúar 2014.
Hinn 29 ára gamli Rami kom til AC Milan frá Valencia í janúar 2014.
Sinisa Mihajlovic, nýráðinn þjálfari AC Milan, taldi sig ekki hafa not fyrir Rami og leyfði honum að fara.
Franski landsliðsmaðurinn ákvað því að halda aftur til Spánar og ganga í raðir Sevilla.
Athugasemdir