Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 07. júlí 2015 11:21
Elvar Geir Magnússon
Laugardal
Twitter-lýsing: Dregið í undanúrslit
Fótbolti.net með beina lýsingu
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Dregið verður í undanúrslit Borgunarbikars karla og Borgunarbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í dag kl. 12:00. Viðstaddir verða fulltrúar félaganna, KSÍ og Borgunar.

Fylgst er með drættinum í beinni Twitter-lýsingu hér á Fótbolta.net og má sjá lýsinguna hér fyrir neðan

Í pottinum í karlaflokki eru þrjú lið úr Pepsi-deildinni og svo KA úr 1. deild sem sló Fjölni úr leik í gær. Bikarmeistarar KR eru í pottinum.

Fylkir, Selfoss og Stjarnan eru í pottinum í kvennaflokki en einn leikur er eftir í 8-liða úrslitum þar: Valur og KR leika á laugardag.

Karlar:
KR, Valur, ÍBV og KA

Konur:
Stjarnan, Fylkir, Selfoss og Valur eða KR
Athugasemdir
banner
banner
banner