„Ég verð náttúrlega bara að vera rosalega glaður og alveg yfir mig ánægður með framlagið í seinni hálfleik,” sagði Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Þórs eftir 2-1 sigur á Selfossi í 1. deild karla nú í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Selfoss
,,Menn brugðust hrikalega vel við mótlætinu enn og aftur og sýndu algjöran Þórs-karakter eins og hann er bestur. Við vorum 1-0 undir ósanngjarnt eftir fyrri hálfleik, mér fannst við spila ágætlega í fyrri hálfleik, við vorum algjörlega með þennan leik í okkar höndum og þetta var gegn gangi leiksins. Heilt yfir er ég mjög ánægður með þennan leik, við sköpuðum okkur fullt af öðrum færum til þess að skora og í rauninni var þetta sanngjarn sigur, bara ekki nógu stór.”
Aðspurður um félagskiptagluggann sem opnar á næstu dögum sagði Donni:
„Við erum að leita af varnarmönnum og við höfum augun opin fyrir góðum mönnum og við stefnum á að skoða þennan glugga alvarlega.”
Aron Rúnarsson Heiðdal og Alfons Sampsted hafa verið orðaðir við Þór, um það sagði Donni:
„Þetta eru bara mjög flottir strákar, báðir mjög frambærilegir spilarar og það eru allir góðir leikmenn velkomnir í Þór. Við tökum þeim fagnandi hverjir sem þeir verða.”
Nánar er rætt við Donna hér að ofan.
Athugasemdir