Ejub þjálfari Víkings var sáttur við sína menn eftir öruggan 4-0 sigur á Fram í kvöld.
"Við vorum að spila vel allan tímann, héldum boltanum vel í fyrri hálfleik. Skoruðum fallegt mark úr aukaspyrnu og eftir það var miklu auðveldara að halda boltanum og spila leikinn."
"Við vorum að spila vel allan tímann, héldum boltanum vel í fyrri hálfleik. Skoruðum fallegt mark úr aukaspyrnu og eftir það var miklu auðveldara að halda boltanum og spila leikinn."
Víkingar linuðu aðeins tökin á leiknum og Framarar komust framar á völlinn en þá kom mark númer tvö sem kláraði í raun leikinn.
"Við áttum að skora í upphafi seinni hálfleiks og svo fannst mér Framarar komast inn í leikinn en ekki ná að skapa sér mikið en eftir annað markið fannst mér bara eitt lið á vellinum."
Víkingar stimpla sig stöðugt betur inn í toppbaráttuna en ætlar Ejub að styrkja liðið sitt í júlíglugganum?
"Já. Eins og allir vita þá erum við búnir að senda Spánverjann heim og Arnar Sveinn fer aftur út í ágúst. Við ætlum að reyna að fá tvo leikmenn ef það er hægt. Tveir fara og þá kæmu tveir, en það þurfa að vera menn sem styrkja okkur."
Nánar er farið yfir leik kvöldsins í viðtalinu og prógrammið framundan hjá Víkingum.
Athugasemdir