Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 07. júlí 2015 21:53
Elvar Geir Magnússon
Gunni Guðmunds: Fengum fín færi til að jafna
Gunnar Guðmundsson.
Gunnar Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta er í erfiðri stöðu í fallsæti 1. deildarinnar en liðið tapaði fyrir Þrótti 1-0 í kvöld. Sigur toppliðs Þróttar var alls ekki ósanngjarn en Grótta fékk sín færi til að ná að skora.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  0 Grótta

„Leikurinn spilaðist svipað og við bjuggumst við. Ég er smá svekktur með smá einbeitingarleysi í byrjun þegar við fáum þetta mark á okkur. Mér fannst við fá fín færi til að jafna þennan leik og Þróttur fékk sín færi líka," sagði Gunnar Guðmundsson, þjálfari Gróttu, eftir leikinn.

Grótta hefur gengið afleitlega í markaskorun og er aðeins með tvö mörk skoruð eftir tíu leiki.

„Mér fannst við verjast vel og ég var ánægður með margt hjá okkur. Við erum farnir að vera aðeins beittari og verðum að fara að troða boltanum yfir línuna. Við verðum að vera aðeins ákveðnari í teignum. Menn þurfa að vera gráðugri og grimmari til að koma boltanum yfir línuna."

Gunnar segist vera farinn að skoða það að reyna að bæta sóknarleikinn með því að sækja styrk í glugganum sem opnar um miðjan mánuðinn. Viðtalið má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner