BÍ/Bolungarvík og Haukar mættust á Torfnesvelli á Ísafirði í kvöld og lauk leiknum með 2-2 jafntefli.
Fótbolti.net ræddi við Jón Hálfdán Pétursson þjálfara BÍ/Bolungarvíkur eftir leikinn.
Fótbolti.net ræddi við Jón Hálfdán Pétursson þjálfara BÍ/Bolungarvíkur eftir leikinn.
„Tiltórulega sáttur með stigið, en við ætluðum að sækja þrjú stig í dag og það mistókst, en sáttur með öll stig sem við fáum.“
Sagði Jón er hann var spurður út í það hvort hann væri sáttur með stigið.
Jón var gríðarlega ósáttur með dómara leiksins í aðdraganda fyrra marks Hauka og hafði hann eftirfarandi að segja um það:
„Fyrra markið, þá hefur hann hag af því að hann fær boltann í höndina á eigin vítateig, hann hefur hag af því. Já fær hann í höndina, boltinn dettur áfram og þeir komast upp,þrír á móti þremur og skora mark, þannig að þar er ég bara gríðarlega ósáttur að dómarinn skyldi ekki dæma hendi. Við fengum sendingu, við fengum dómaratríó hérna fyrir tíu dögum síðan, þar sem við vorum gríðarlega ósáttir, þar sem við vildum fá vítaspyrnu, fengum ekki, dæmdi síðan vítaspyrnu á okkur sem var ekki vítaspyrna og í dag var ég bara mjög ósáttur að hann hefði ekki hafa dæmt hendi, eða leikbrot þegar hann fékk hann í hendina á sér og þeir skoruðu mark uppúr því.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir