Pétri Péturssyni þjálfara fannst úrslitin á Ólafsvíkurvelli ekki vera í samræmi við gang leiksins í kvöld.
"Miðað við þennan leik þá var kvöldið erfitt, mér fannst Víkingur ekki skapa sér eitt einasta færi!"
"Miðað við þennan leik þá var kvöldið erfitt, mér fannst Víkingur ekki skapa sér eitt einasta færi!"
Lestu um leikinn: Víkingur Ó. 4 - 0 Fram
En hvað réð úrslitum.
"Við fáum á okkur mark úr aukaspyrnu í fyrri hálfleik frá Ingólfi Sigurðssyni, bara virkilega vel gert hjá honum. Svo gefum við tvö mörk á tveimur mínútum svo mér fannst þessi leikur aldrei 4-0 leikur, en svona fór staðan".
Pétur er að mörgu leyti sáttur með leik síns liðs í deildinni, en hvað þarf að gerast til að stigasöfnunin gangi betur?
"Þetta er stundum spurning um heppni og við þurfum að fá hana með okkur í lið held ég".
Nú er glugginn að opnast, ætla Framarar að styrkja leikmannahópinn?
"Já örugglega. Ef það er eitthvað sem hægt verður að gera munum við gera það."
Nánar er farið yfir leik kvöldsins í viðtalinu, rætt um muninn á Pepsi deildinni og þeirri fyrstu og markmið Frammara í mótinu framundan.
Athugasemdir