Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 07. júlí 2015 23:02
Magnús Már Einarsson
Sjáðu mörkin: Fjarðabyggð á flugi - Klaufaleg mistök hjá HK
Elvar Ingi skoraði.
Elvar Ingi skoraði.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Fjarðabyggð sigraði HK 3-1 á útivelli í 1. deild karla í Kórnum í kvöld.

Annað markið í leiknum var í skrautlegri kantinum en Brynjar Jónasson framherji Fjarðabyggðar fékk það á silfurfati.

Stefán Ari Björnsson, markvörður HK, átti sendingu á Andra Geir Alexandersson sem missti boltann undir sig. Brynjar þakkaði fyrir sig með því að skora.

Leikurinn var sýndur beint á SportTV.is og hér að neðan má sjá mörkin.

HK 1 - 3 Fjarðabyggð
0-1 Stefán Þór Eysteinsson ('20)
0-2 Brynjar Jónasson ('58)
0-3 Elvar Ingi Vignisson ('71)
1-3 Guðmundur Atli Steinþórsson ('85)

Smelltu hér til að sjá mörkin
Athugasemdir
banner
banner
banner