„Þetta var góður leikur, ég var svekktur að við skildum tapa en fannst við ekki eiga það skilið,” sagði Zoran Milijkovic þjálfari Selfoss eftir 2-1 tap gegn Þór í 1. deild karla nú í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Selfoss
Seinna mark Þórsara í leiknum var heldur betur skrautlegt og má skrifa það á Vigni Jóhannesson markvörð Selfoss. Zoran sagðist ekki hafa séð það nægilega vel: ,,Kannski þarf ég bara að horfa á upptökuna af þessu og þá get ég dæmt um það. Kannski var verið að refsa okkur því gáfum þeim seinna markið svo auðveldlega, og fyrra markið reyndar líka.”
„Ég er sáttur með hvernig við spiluðum en ekki úrslitin, eins og ég sagði áttum við ekki skilið að tapa þessum leik.”
Aðspurður um félagskiptagluggann sagði Zoran: „Við hugsum ekki um það núna, sérstaklega ekki eftir þennan leik. Það er hins vegar ekki á dagskránni að ná í nýja leikmenn.”
Nánar er rætt við Zoran hér að ofan.
Athugasemdir