Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 07. október 2015 21:26
Jóhann Ingi Hafþórsson
Garðabæ
Anna Björk: Enginn dauðadómur að tapa 3-1
Anna Björk Kristjánsdóttir
Anna Björk Kristjánsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anna Björk Kistjánsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, var eins og gefur að skilja svekkt eftir 3-1 tap gegn Zvezda í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Stjarnan byrjaði afar illa í kvöld og réði það að lokum úrslitum í leiknum.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  3 WFC Zvezda 2005

„Fyrstu 20-25 mínúturnar, við vorum sofandi. Við fengum á okkur asnaleg mörk sem við eigum ekki að vera að fá á okkur."

Anna útskýrði þessa slæmu byrjun en liðið byrjaði einnig afar illa er liðin mættust fyrir ári síðan í sömu keppni,

„Stress kannski. Í fyrra fengum við á okkur mörk snemma líka. Við vorum kannski hræddar um að það myndi endurtaka sig."

„Í seinni hálfleik fannst mér við stjórna leiknum þó þær hafi fengið færi þá fengum við hættulegri færi."

Anna segir möguleikann vera til staðar í seinni leiknum.

„Þetta er alls enginn dauðadómur að tapa hérna 3-1."

Viðtalið við Önnu má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner