„Það er aldrei erfitt að gíra sig fyrir landsleiki. Þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir. Við erum að koma heim og spila síðasta landsleikinn hér í langan tíma og það verður ekki vandamál að gíra sig í þetta verkefni," segir landsliðsbakvörðurinn Ari Freyr Skúlason.
„Við ætlum að ná toppsætinu, það er númer eitt hjá okkur. Við viljum sýna að þetta er engin tilviljun með því að enda á toppnum."
Leikið verður gegn Lettlandi hér á Laugardalsvelli á laugardag og svo flogið til Tyrklands í útileik sem verður á þriðjudag.
„Þetta er ekki stutt flug og þetta eru ekki léttir leikir."
Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir