mið 07. október 2015 09:28
Magnús Már Einarsson
Brotist inn hjá Cleverley - Hótað með hafnaboltakyltu
Mynd: Getty Images
Tom Cleverley, miðjumaður Everton, og fjölskylda hans lenti í leiðinlegri lífsreynlu síðastliðið föstudagskvöld þegar brotist var inn á heimili þeirra.

Cleverley var heima með unnustu sinni og tveggja ára dóttur um klukkan 20:00 þegar menn vopnaðir hafnaboltakylfu brutust inn.

Þjófarnir hótuðu Cleverley og unnustu hans með hafnaboltakylfu og tóku ýmsa hluti.

Þeir stálu skartgripum og tískuvörum sem og tveimur Range Rover bifreiðum.

Samtals er andvirði þýfisins um 175 þúsund pund eða 33 milljónir króna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner