Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mið 07. október 2015 14:11
Elvar Geir Magnússon
Freyr Alexanders: Viljum fullt hús úr þessari ferð
Freyr Alexandersson.
Freyr Alexandersson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, segir að krafan sé sett á að vera með fullt hús eftir fyrstu þrjá leiki undankeppni EM. Ísland vann Hvíta-Rússland í síðasta mánuði en framundan eru útileikir gegn Makedóníu og Slóveníu 22. og 26. október.

„Mér lýst mjög vel á verkefnið. Ferðalagið verður bara skemmtilegt, þetta er góður hópur til að ferðast með. Þetta eru skemmtilegir ferðafélagar," segir Freyr.

„Það er mikilvægt að allir leikmenn séu andlega undirbúnir undir það að lenda kannski í skrítnum aðstæðum varðandi æfingavelli og keppnisvöll. Ef eitthvað svoleiðis kemur upp þá bara bregðumst við við aðstæðum og tæklum það vel."

„Við viljum ná sex stigum úr þessari ferð. Annað væri vonbrigði. Þetta er samt snúið verkefni, sérstaklega Slóveníuleikurinn. Þetta er mjög sterkt lið, sterkara en ég átti von á svo ég sé hreinskilinn."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. Þar talar Freyr meðal annars um að liðið sé alltaf að verða betra og betra í að stýra leikjunum og útskýrir þær tvær breytingar sem hann gerir á leikmannahópnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner