Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, er spenntur fyrir komandi leik sinna stúlkna gegn WFC Zvezda 2005 í 32-liða úrslitum Meistaradeild kvenna í Garðabænum í kvöld.
Stjarnan hefur ekki spilað keppnisleik í langan tíma en Ólafur telur sitt lið vera vel undirbúið.
Stjarnan hefur ekki spilað keppnisleik í langan tíma en Ólafur telur sitt lið vera vel undirbúið.
„Það er mikil spenna, þetta er það sem maður er búinn að bíða eftir frá því að Íslandsmótinu löng. Það sundraðist svolítið hópurinn því landsliðið var í gangi bæði hér heima og erlendis, en hinar voru hér heima og spiluðu æfingaleik við 3. flokk og svo spiluðum við æfingaleik við Breiðablik þegar allir voru komnir saman, þannig það var mjög gott," sagði Ólafur við Fótbolta.net.
„Við þurfum að loka á leikmann númer 25 sem skoraði á okkur fjögur mörk í fyrra og spila af aðeins meiri skynsemi varnarlega. Við sáum það að við áttum í fullu tré við þær, það voru fyrstu 10 mínúturnar og svo seinustu þrjár mínúturnar í leiknum í fyrra sem fóru illa með okkur. Við þurfum að halda einbeitningu allan tímann."
Athugasemdir