Fotbolti.net
07.10.16 - 17:26
Elvar Geir Magnússon

Ólafur Páll nýr aðstoðarmaður Heimis (Staðfest)

Ólafur Páll verður aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar, þjálfara FH.

Ólafur Páll verður aðstoðarmaður Heimis Guðjónssonar, þjálfara FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar hafa staðfest fréttir Fótbolta.net frá því fyrr í dag en Ólafur Páll Snorrason hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.
„Við bjóðum Óla velkominn til starfa. Áfram FH!\" segir á Facebook-síðu fhingar.net.

Ólafur Páll hefur síðustu tvö ár verið spilandi aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar hjá Fjölni. Ekki kemur fram hjá FH-ingum hvort skór Ólafs séu kmomnir upp á hillu.

Ólafur þekkir vel til hjá FH enda lék hann lengi með félaginu og var fyrirliði í Kaplakrika áður en hann var ráðinn aðstoðarþjálfari Fjölnis.

Hann varð fjórum sinnum Íslandsmeistari sem leikmaður með FH og lagði upp ófá mörkin.

Guðlaugur Baldursson var aðstoðarþjálfari FH en félagið ákvað að gera ekki nýjan samning við hann eins og fram kom í viðtali sem birtist fyrr í dag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.