Ólafur Ingi Skúlason, leikmaður íslenska landsliðsins, var með bólginn olnboga á æfingu landsliðsins í Katar í morgun.
Ólafur Ingi hefur verið að glíma við bólguna undanfarið en reglulega þarf að taka vökva úr höndinni til að minnka bólguna.
Ólafur Ingi hefur verið að glíma við bólguna undanfarið en reglulega þarf að taka vökva úr höndinni til að minnka bólguna.
Á Snapchat (fotboltinet) má sjá betur hvernig olnboginn á Ólafi Inga var.
Hér að neðan má einnig sjá fleiri myndir af bólgunni.
Ísland mætir Tékklandi í vináttuleik í Katar á morgun áður en liðið leikur við heimamenn í næstu viku.
Athugasemdir