Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 07. nóvember 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Oxlade-Chamberlain gerir atlögu að byrjunarliðssæti
Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: Getty Images
Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Liverpool, stefnir á að festa sig í sessi í byrjunarliðinu eftir að hafa náð að opna markareikning sinn í ensku úrvalsdeildinni með liðinu í 4-1 sigri á West Ham um helgina.

Oxlade-Chamberlain hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu síðan hann kom frá Arsenal í ágúst en hann byrjaði gegn West Ham.

„Það er aldrei auðvelt að koma inn í nýtt lið með svona mikil gæði eins og við erum með hér. Það tekur tíma að aðlagast og læra á nýtt leikkerfi og nýjan leikstíl," sagði Oxlade-Chamberlain.

„Ég hef þurft að vera þolinmóður. Ég hefði auðvitað vilja spila eins mikið og ég get. Það eina sem ég get gert þegar ég fæ tækifærið er að reyna að standa mig vel og hjálpa liðinu að vinna með því að skora mörk og skapa færi."

„Ég ætla að reyna að gera það og ýta á byrjunarliðssæti eins og allir aðrir. Það er best að hafa samkeppni um stöður."

Athugasemdir
banner
banner
banner