fim 07. desember 2017 11:20
Magnús Már Einarsson
Damir framlengir við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik.

Hinn 27 ára gamli Damir kom til Breiðabliks árið 2014 og hefur síðan þá skorað sex mörk í 130 leikjum.

Damir er uppalinn í HK en hann hefur einnig leikið með Leikni R. og Víkingi Ólafsvík á ferlinum.

„Damir er ekki einungis öflugur varnarmaður heldur einnig sterkur karakter sem drífur félaga sína áfram. Það er ánægjulegt að leikmenn eins og Damir hafi metnað og framtíðarsýn til þess að fylgja Blikaliðinu inn í framtíðina með nýjum þjálfara," segir á Blikar.is.

„Vert er að benda á þá skemmtilegur staðreynd að í dag eru nákvæmlega fjögur ár síðan Damir handsalaði fyrsta samninginn sinn við knattspyrnudeild Breiðabliks. Blikar fagna þessum tíðindum og hlakka til að sjá hann í græna búningnum áfram næstu árin."

Sjá einnig:
Af djamminu yfir í fremstu röð (Viðtal í apríl 2017)

Á dögunum skrifaði Karl Friðleifur Gunnarsson, sextán ára leikmaður Blika, undir þriggja ára samning. Karl hefur leikið tólf U-17 ára landsleiki og skorað í þeim þrjú mörk en hann lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki í Bose mótinu á dögunum.

Þá hefur Skúli E. Kristjánsson Sigurz, 19 ára miðvörður, einnig gert þriggja ára samning. Skúli var í láni hjá Leikni R. í Inkasso-deildinni síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner