Gennaro Gattuso segir að AC Milan þurfi nauðsynlega á sigri að halda, upp á andlega heilsu.
Gattuso, sem lék um árabil með Milan sem leikmaður, tók við sem nýr stjóri liðsins á dögunum eftir að Vincenzo Montella var rekinn.
Fyrsti leikur Gattuso sem þjálfari Milan fór ekki alveg eins og hann hafði óskað sér. Milan mætti botnliði Benevento í ítölsku úrvalsdeildinni og leiddi 2-1 alveg frá 94. mínútu þegar markvörður Benevento tók upp á því að jafna með skallamarki.
Annar leikur Gattuso verður í dag gegn Rijeka frá Króatíu í Evrópudeildinni. Milan hefur nú þegar tryggt sér farseðilinn í 32-liða úrslit, en Gattuso segir að liðið þurfi samt sigur.

„Þetta er mikilvægur leikur, jafnvel þó hann breyti litlu máli hvað varðar stöðuna í riðlinum, en andlega vantar okkur sigur," sagði Gattuso á blaðamannafundi fyrir leikinn.
„Ég vil að leikmennirnir sanni fyrir mér að þeir séu hungraðir og geri mér erfitt fyrir að velja byrjunarliðið."
Hér að neðan eru leikir dagsins í Evrópudeildinni.
A-riðill:
18:00 Slavia Prag - Astana
18:00 Villareal - Maccabi Tel Aviv
B-riðill:
18:00 Young Boys - Skenderbeu
18:00 Dynamo Kiyv - Partizan
C-riðill:
18:00 Istanbul Basaksehir - Braga
18:00 Hoffenheim - Ludogorets
D-riðill:
18:00 Rijeka - AC Milan
18:00 Austria Vín - AEK
E-riðill:
18:00 Apollon - Everton
18:00 Atalanta - Lyon
F-riðill:
18:00 FCK - Sheriff
18:00 Zlín - Lokomotiv Moskva
G-riðill:
20:05 Steaua - Lugano
20:05 Hapoel Beer Sheva - Viktoria Plzen
H-riðill:
20.05 Arsenal - Bate Borisov
20:05 Crvena Zvezda - Köln
I-riðill:
20:05 Vitoria SC - Konyaspor
20:05 Marseille - Salzburg
J-riðill:
20:05 Hertha - Östersund
20:05 Zorya - Athletic Bilbao
K-riðill:
20:05 Vitesse - Nice
20:05 Zulte Waregem - Lazio
L-riðill:
20:05 Real Sociedad - Zenit
20:05 Vardar - Rosenborg
Athugasemdir