Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 08. febrúar 2016 12:07
Magnús Már Einarsson
Gylfi: Vonandi get ég haldið áfram að skora
Mynd: Getty Images
„Það tók tíma fyrir mig að byrja að skora mörk en ég er kominn í gang núna," sagði Gylfi Þór Sigurðsson í viðtali við heimasíðu Swansea eftir 1-1 jafnteflið gegn Crystal Palace um helgina.

Gylfi skoraði beint úr aukaspyrnu í leiknum en þetta var fimmta mark hans í sex leikjum á þessu ári.

„Ég var bjartsýnn fyrir aukaspyrnuna og hitti boltann vel, ég var ánægður með það. Þetta gaf okkur góða byrjun og við vorum nálægt því að skora aftur en við náðum bara ekki að brjóta þá á bak aftur."

„Vonandi get ég haldið áfram að skora en það mikilvægasta er að vinna leiki."


Sjá einnig:
Sjáðu markið: Gylfi skoraði flott aukaspyrnumark gegn Crystal Palace
Athugasemdir
banner
banner
banner