Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 08. febrúar 2016 17:30
Magnús Már Einarsson
Klopp vill leysa miðasölu deiluna
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vill leysa deilu sem er í gangi vegna hækkunar á miðaverði á Anfield.

Hækka á dýrustu miðana á Anfield úr 54 pundum upp í 77 pund á næsta tímabili og stuðningsmenn sýndu óánægju sína með því að fara heim á 77. mínutu í leiknum gegn Sunderland um helgina.

Liverpool var 2-0 yfir þegar stuðningsmennirnir fóru en leikurinn endaði með jafntefli, 2-2.

„Þetta er ekki það sem við viljum. Ég veit að allir hjá félaginu hafa mikinn áhuga á að finna lausn á þessu," sagði Klopp.

„Við viljum ekki að fólk yfirgefi leikvanginn áður en leik lýkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner