Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 08. febrúar 2016 23:24
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Will Keane gerði glæsilegt mark gegn Norwich
Mynd: Getty Images
Will Keane var í byrjunarliði U21 árs liðs Manchester United sem slátraði U21 árs liði Norwich 7-0 fyrr í kvöld.

Keane gerði fimm mörk í leiknum, en Phil Jones, Adnan Januzaj og Memphis Depay voru allir í byrjunarliðinu.

Memphis lagði þrjú mörk upp og þurfti Januzaj að fara meiddur af velli.

Hér fyrir neðan má sjá eitt af mörkum Keane í leiknum sem er vægast sagt magnað og skiljanlegt að stuðningsmenn félagsins vilji sjá þennan 23 ára gamla framherja fá tækifæri með aðalliðinu.


Athugasemdir
banner
banner