mán 08. febrúar 2016 18:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo gæti farið frá Real Madrid árið 2018
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo ætlar að klára samning sinn hjá Real Madrid áður en hann ákveður framtíð sína.

Ronaldo varð 31 árs í síðustu viku en hann er samningsbundinn Real Madrid til sumarsins 2018.

„Ég vil vera hér í tvö ár til viðbótar og síðan skoða ég framtíðina. Þetta er samningurinn sem ég er með," sagði Ronaldo.

„Núna vil ég reyna að vinna titla og Meistaradeildina einu sinni til viðbótar. Ég er búinn að spila í sjö ár á Spáni og að mínu mati er La Liga besta deild í heimi."

„Ég var líka í sex ár á Englandi, í Manchester, og deildin þar er líka yndisleg, samkeppnishæf, með góðum leikmönnum."

Athugasemdir
banner
banner
banner