Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   fös 08. mars 2013 15:35
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Luis Suarez: Smá möguleiki á Meistaradeildarsæti
Mynd: Getty Images
Luis Suarez, framherij Liverpool, hefur ekki ennþá gefið upp alla von um að ná Meistaradeildarsæti.

Þegar tíu umferðir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni er Liverpool tólf stigum á eftir Tottenham sem er í þriðja sætinu og tíu stigum á eftir Chelsea í fjórða sætinu.

Liverpool fær Tottenham í heimsókn á sunnudag og Suarez telur að liðið geti ennþá haldið í vonina um Meistaradeildarsæti með sigri í þeim leik.

,,Við höfum verið á fínu skriði að undanförnu og þetta er gott tækifæri til að minnka bilið á milli okkar og Spurs," sagði Suarez.

,,Það er smá möguleiki á að við getum komist í Meistaradeildina og ef við viljum gera það þá er þetta leikur sem við verðum að vinna."
Athugasemdir
banner