Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. mars 2018 15:30
Elvar Geir Magnússon
Inter og AC Milan vilja Kovacic
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ítölsku stórliðin Inter og AC Milan vilja fá Mateo Kovacic, króatíska miðjumanninn hjá Real Madrid.

Kovacic kom til Real 2015 og hefur tekið þátt í að vinna Meistaradeildina tvö ár í röð ásamt fjölda annarra bikara.

Kovacic hefur ekki átt fast sæti í liði Madrídinga en Tuttosport segir að Inter hafi gert tilboð í hann í janúar sem var hafnað.

Kovacic kom til Real frá Inter 2015 fyrir 35 milljónir punda eftir að hafa kostað ítalska félagið 11 milljónir punda þegar hann kom frá Dinamo Zagreb.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Kovacic með Króatíu í landsleik á Laugardalsvelli.
Athugasemdir
banner
banner