Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 08. mars 2018 18:00
Guðjón Bjartur Benediktsson
Heimild: BBC 
Koscielny: Við erum vonsviknir með spilamennsku okkar
Mynd: Getty Images
Laurent Koscielny varnarmaður Arsenal segir það erfitt að snúa gengi liðsins til betri vegar. En Arsenal hefur tapað 4 síðustu leikjum sínum.

Arsenal mætir AC Milan í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

„Við verðum að fara inní leikinn með jákvætt hugarfar því heilinn stjórnast af hugsunum okkar," sagði Koscielny.

Arsenal eru 13 stigum frá Meistardeildarsæti en liðið hefur tapað síðustu fjórum leikjum.

„Við erum vonsviknir með spilamennsku okkar. Það er mikilvægt að við sem lið vinum saman í eina átt. Við verðum að vera jákvæðir þannig komumst við aftur á beinu brautina," sagði Koscielny að lokum.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner