Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 08. mars 2018 16:37
Elvar Geir Magnússon
Mahrez: Samherjar mínir stóðu með mér
Hvar spilar Mahrez á næsta tímabili?
Hvar spilar Mahrez á næsta tímabili?
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez, sóknarleikmaður Leicester, segir að liðsfélagar sínir hafi staðið með sér síðan möguleg sala hans til Manchester City rann út í sandinn í janúarglugganum.

Þessi 27 ára leikmaður vildi fara til City og mætti ekki á æfingar Leicester fyrstu dagana eftir að ljóst var að ekkert yrði úr skiptunum. Hann er þó mættur úr verkfalli og tryggði Leicester stig með því að skora gegn Bournemouth í síðustu umferð.

Mahrez segist sjá eftir ákveðnum hlutum en vill horfa fram á veginn.

„Þetta var erfið staða en er nú hluti af fortíðinni. Ég þurfti að taka mér tíma til að hugsa og var því fjarverandi um tíma. Þú sérð alltaf eftir einhverju en á þessum tíma taldi ég þetta best," segir Mahrez.

„Ég talaði við leikmann, ég talaði við stjórann, ég talaði við alla. Það voru allir ágætir. Ég var í sambandi við félagið og það höndlaði þetta mjög vel."

Margir búast við því að Mahrez muni færa sig um set í sumar.

„Í fótboltanum koma leikmenn og fara. Ég er ekki að segja að ég sé að koma eða fara. Allt milli mín og félagsins er í góðum málum svo sjáum við í sumar hvað gerist. Sem stendur er ég leikmaður Leicester."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner