Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 08. apríl 2016 14:12
Elvar Geir Magnússon
Tomislav Misura í Reyni á láni (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Reynir Sandgerði hefur fengið framherjann Tomislav Misura á láni frá Grindavík.

Tomislav kom til Grindvíkinga fyrir tveimur árum síðan.

Í fyrra skoraði hann sjö mörk í 1. deildinni eftir að hafa skorað fimm mörk árið 2014.

Tomislav er 34 ára gamall reynslubolti en hann skoraði gegn FH í Meistaradeildinni árið 2005 með liði Neftchi Baku frá Aserbaídsjan.

Tomislav hefur verið mikið á bekknum hjá Grindavík á undirbúningstímabilinu og hann er nú mættur til Reynis í 3. deildina.

Reynir hafnaði í 3. sæti 3. deildar í fyrra og var nálægt því að komast upp.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Tomislav í leik með Grindavík síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner