Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 08. apríl 2018 20:43
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Kalinic bjargaði stigi fyrir Milan
Mynd: Getty Images
Milan 1 - 1 Sassuolo
0-1 Matteo Politano ('75)
1-1 Nikola Kalinic ('86)

Nikola Kalinic bjargaði stigi fyrir AC Milan er liðið fékk Sassuolo í heimsókn í dag.

Milan var betra liðið frá upphafi til enda en hinn efnilegi Matteo Politano kom gestunum yfir þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.

Kalinic jafnaði á 86. mínútu og hefðu heimamenn getað nælt sér í stigin á lokamínútunum en inn vildi boltinn ekki.

Jafnteflið er ákveðinn skellur fyrir meistaradeildarvonir Milan, en liðið er átta stigum frá meistaradeildarsæti. Þá er liðið tveimur stigum fyrir ofan Fiorentina í evrópudeildarbaráttunni.
Athugasemdir
banner
banner