Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 08. apríl 2018 20:48
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Valencia hoppar yfir Real Madrid
Mynd: Getty Images
Real Sociedad lék á alls oddi er Girona kíkti í heimsókn í spænska boltanum í dag.

Sergio Canales og Adnan Januzaj gerðu mörk Sociedad í fyrri hálfleik og opnuðust flóðgáttirnar undir lokin þegar Miguel Oyarzabal gerði tvennu áður en Juanmi gerði fimmta og síðasta mark leiksins.

Sociedad siglir lygnan sjó um miðja deild en Girona hefði getað komist í evrópudeildarsæti með sigri. Liðið er þremur stigum frá Villarreal.

Valencia tók þá yfir Real Madrid í stigatöflunni með sigri á Espanyol. Rodrigo gerði eina mark leiksins á sjöundu mínútu.

Gestirnir frá Barcelona voru öflugir og fengu mörg færi en tókst ekki að skora. Valencia er í þriðja sæti, þremur stigum eftir Atletico Madrid og einu stigi fyrir ofan Real.

Real Sociedad 5 - 0 Girona
1-0 Sergio Canales ('11)
2-0 Adnan Januzaj ('35)
3-0 Miguel Oyarzabal ('71)
4-0 Miguel Oyarzabal ('85)
5-0 Juanmi ('88)

Valencia 1 - 0 Espanyol
1-0 Rodrigo ('7)
Athugasemdir
banner
banner