Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 08. apríl 2018 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Stóri Sam: Hefðum slegið Liverpool úr Meistaradeildinni
Mynd: Getty Images
Everton gerði markalaust jafntefli við Liverpool um helgina og svaraði Sam Allardyce, stjóri Everton, gagnrýnendum sínum fullum hálsi eftir leikinn.

Stóra Sam tókst að stýra Everton frá falli en liðið hefur þrátt fyrir það ekki verið að gera neinar rósir að undanförnu.

„Ef leikirnir við Liverpool hefðu verið í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar þá værum við komnir áfram. Þetta er eitthvað sem gagnrýnendur mínir líta framhjá," sagði Stóri Sam eftir leikinn.

Þetta var þriðja viðureign liðanna á tímabilinu. Liðin gerðu 1-1 jafntefli í deildinni á Anfield í desember og sló Liverpool granna sína svo úr FA bikarnum í janúar.

Þess má geta að Liverpool hvíldi lykilmenn um helgina fyrir meistaradeildarslaginn við Manchester City á þriðjudaginn.
Athugasemdir
banner
banner