banner
   mið 08. júlí 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: FI 
Pellissier framlengir um þrjú ár - Hjá Chievo til 39 ára aldurs
Mynd: Getty Images
Sergio Pellissier sagðist hafa verið mjög hissa þegar honum var boðin þriggja ára samningsframlenging við ítalska A-deildarliðið Chievo.

Pellissier er ítalskur sóknarmaður sem hefur verið hjá Chievo síðustu fimmtán ár og skorað 114 deildarmörk í 406 leikjum á þeim tíma.

Í dag er Pellissier 36 ára gamall og verður hann því 39 ára þegar samningurinn við Chievo rennur út.

„Ég bjóst ekki við þremur árum. Ég var hissa og fann fyrir miklu trausti sem ég ætla að endurgjalda á vellinum.

„Okkar markmið er að halda sætinu í Serie A sem er gífurlega mikilvægt fyrir svona lítið félag.

„Mitt persónulega markmið er að rjúfa 100 marka múrinn í Serie A."


Pellissier hefur skorað 93 mörk í A-deildinni og skoraði einnig mark í eina landsleik ferilsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner