,,Ég er mjög sáttur, vinnuframlagið... ég get ekki lýst því hvað ég er ánægður með þetta," sagði Þórður Jensson þjálfari FH eftir 2-3 sigur á Val í Pepsi-deild kvenna. Sigurinn lyfti FH úr fallsæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 3 FH
,,Það er erfitt að lenda 1-0 undir á 5. mínútu en við erum búin að vinna í þessu síðustu vikur og það sýndi sig núna að þær voru allar tilbúnar að leggja sig fram til að ná þessum úrslitum til að koma okkur uppfyrir Aftureldingu. Það er fyrsta skrefið, nú er bara að bæta í."
Valur komst yfir á 3. mínútu en var Þórður ekki smeykur við það þá að Valur myndi rúlla yfir FH?
,,Jú klárlega. Ósjálfrátt þá kemur sú hugsun í mann útfrá úrslitum sumarsins. En við vorum búin að vera að tala um að vera jákvæð og halda áfram allan tímann. Þó það kæmi eitthvað bakslag að leikurinn er 90 mínútur og við þyrftum að vera þolinmóðar. Það borgaði sig og við settum þrjú á þær."
Nánar er rætt við Þórð í sjónvarpinu að ofan en þar er hann spurður um síðustu mínúturnar sem voru mjög spennuþrungnar: ,,Ég skelf ennþá svo þú getur ímyndað þér hvernig ég var síðustu mínúturnar."
Athugasemdir