Íslandsmeistarar FH hafa boðað til fréttamannafundar í hádeginu í dag.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Bergsveinn Ólafsson kynntur sem nýr leikmaður liðsins þar.
Bergsveinn hefur verið fyrirliði Fjölnis undanfarin ár en hann er uppalinn í Grafarovgi.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net verður Bergsveinn Ólafsson kynntur sem nýr leikmaður liðsins þar.
Bergsveinn hefur verið fyrirliði Fjölnis undanfarin ár en hann er uppalinn í Grafarovgi.
Samningur Bergsveins er að renna út og mörg félög hafa sýnt honum áhuga. FH fékk leyfi frá Fjölni til að ræða við Bergsvein í vikunni en ekki má hefja viðræður við samningslausa menn fyrr en í næstu viku samkvæmt reglum KSÍ.
FH gekk strax í málið og virðist hafa tryggt sér þjónustu Bergsveins næstu árin.
Pétur Viðarsson er á förum frá FH og óvíst er með framtíð Kassim Doumbia sem er samningslaus. Félagið hefur því verið í í leit að nýjum miðverði.
Athugasemdir